6.8.2008 | 16:34
Löppin á honum Skrekk endurfæddist á mér!!!
Skellti í mig tveimur öllurum í gærkvöldi í góðra vina hóp og viti menn! Ég hefði alveg eins getað hellt þessum andskota (sorry) beint niður í vinstri ristina á mér því hún blés upp eins og plasthanski og tærnar 5 stóðu upp úr eins og þeim hefði verið stungið niður í blómapott á pinna Fóturinn á mér var eins og á honum Skrekk (græna karlinum í samnefndri teiknimynd) nema minn vinstri fótur var ekki grænn Hann var röndóttur hvítur og sólbrúnn á köflum eftir sandalabönd. Sko þetta væri í lagi ef ég gæti stungið löngu röri í löppina og endurnýtt bjórinn aftur og aftur, en það stendur víst ekki til boða. Daginn eftir vakna ég með nokkuð eðlilegan fót en ég er viss um að það er einhver sem kann þessa endurvinnslu á öllaranum sem safnast hafði fyrir í mínum vinstri fæti, einhver sem er ósýnilegur, ekki frá þessum heimi og nýtir sér slíkar veigar á meðan við sofum svefni hinna saklausu
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
dlkb
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Illa farið með góðan öllara , Þú drekkur hann sennilega allt of hratt dúllan mín, fara sér aðeins hægar he he
Allt gott héðan bara hiti og sól
Kveðja Ása
Ása Vinkona (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 22:27
Sé þetta alveg fyrir mér hehehe þú kannt svo sannarlega að koma atburðum í orð :) Gaman að sjá hvað þú ert að brasa :) Bið að heilsa Margréti samstarfsfélaga mínum sem er þarna úti hjá þér hehe
Lóa (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 23:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.