æ það er allt á floti allstaðar......

Jamm og já. Núna er míns búin að skila MA ritgerðinni til prófdómara og er að fara að pakka niður fullt af sólarfötum. Cool Ætlaði nú reyndar að reyna að taka eitthvað til hérna heima hjá mér áður en ég fer til útlanda í sex vikur - því hér er allt á floti í drasli eftir mikil skrif þar sem ritgerðin mín gekk fyrir öllu - en míns á eftir að pakka og..... en kannski tekur hann Siggi þetta bara að sér. Ég meina hvað á hann að gera þegar ég er ekki heima í 6 vikur InLove

Neikvæðni leiðir af sér neikvæðni sem leiðir af sér enn meiri neikvæðni sem...

Neiknvæðnital virðist tröllríða samfélagsumræðunni í dagAngry  Við erum öll að missa vinnuna, fara á hausinn og verðum að selja jeppann því við höfum hvorki efni á bensíni, né greiða vextina af 100% láninu sem við fengum þegar Ísland var best í heimi núna fyrir áramótW00t   Bankarnir buðu lán bara eins og hver og einn vildi og það var á mörkunum að maður fengi stórt súkkulaðistykki eða sjónvarp með hverju láni sem var yfir miljón. Núna lítur út fyrir að við upplifum okkur sem sveltandi þróunarríki sem er alveg að fara á hausinnPinch  

Fyrir nokkru sá ég í sjónvarpinu að það væru 16% fyrirtækja sem ætluðu að segja upp starfsmönnum. Hrikalegt!  En hvað með hin 84% sem ætluðu að halda sínu fólki eða ráða nýja. Jú, jú það var með í prósentukökunni en ekkert fréttnæmt við það á þessum síðustu og verstu tímum. Hefði líklega verið fréttaefni fyrir áramót. Í dag les ég að stjórnendur rúmlega 30% fyrirtækja hafi fækkað starfsmönnum eða hyggist gera það. Auðvitað, ef hinir eru að gera það þá verðum við líka, ég meina það kemur fram í fréttum og allir eru að tala um það. HALLÓ! svona neikvæðinishjal leiðir af sér neikvæðnishugsun sem velltur upp á sig og getur orðið stórt samfélagsmein. Auðvitað er ástandið ekki eins gott núna og það var, en var það svona rosalega gott eins og okkur var sagt fyri áramót?Undecided


« Fyrri síða

Um bloggið

dlkb

Höfundur

Dagbjört L. Kjartansd. Bergmann
Dagbjört L. Kjartansd. Bergmann

Sjálfstæður einstaklingur, kona, móðir, dóttir, sambýlingur, frænka, vinur, félagsráðgjafi með starfsréttindi, MA í félagsfræði/atvinnulífsfræði, kennsluréttindi fyrir framhaldsskóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • brunninn bíll 3
  • ...teli_610966

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband